Kaflaskil.

Hvít glitrandi jörð blasir við hér í morgunsárið. Fennt hefur yfir spor gærdagsins, líkt og að hvítri hulu hafi verið sveipað yfir liðna mánuði og kaflaskil fyrir seinasta hluta ársins hafa verið sett. Fyrsti snjórinn var alltaf spennandi þegar ég var barn. Finn ekki þá spennu og gleði hríslast um mig í dag líkt og ég fann þegar ég var barn. Samt er eins og lítil stelpa einhversstaðar langt, langt inni í mér sé að hoppa og hrópa og reyna að ná athygli minni. Full eftivæntingar og ævintýragirni reynir hún óðmála að telja mér trú um að það væri góð hugmynd að fara út og hreinlega velta mér uppúr snjónum, stinga nokkrum lúkum að nýföllnum snjó upp í munninn og finna kaldan snjóin bráðna á tungunni um leið og ég horfi á þessi fallegu letilegu snjókorn falla hægt til jarðar þar sem ég ligg og dáleiðist af sjónarspilinu í dagrenningunni. Hvað ef þessi litla stelpa hefur rétt fyrir sér og að það sé góð hugmynd að fara út og velta sér í snjónum, ganga í hringi og skoða nýju fótspor mín og leggjast svo bara út af og horfa á snjókornin svífa til jarðar, falla á andlit mitt og finna þau bráðna á vöngum mínum. Reka jafnvel út úr mér tunguna og athuga hvort ég fangi nokkur snjókorn í leiðinni. Kanski yrðu það ákveðin kaflaskil fyrir mig líka og tækifæri til nýs upphafs á lífsleið minni.
R.T.

Comments